HomeBónus deildinBónus deild kvennaHaukar mæta Njarðvík í úrslitum Bónus deildarinnar

Haukar mæta Njarðvík í úrslitum Bónus deildarinnar

Njarðvík tryggði sér sæti í úrslitum Bónus deildar kvenna með 83-72 sigri á Grindavík í oddaleik liðanna í kvöld. Eftir mikla spennu vann Njarðvík einvígið samanlagt 3-2 og er því á leið í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn. Brittany Dinkins var stigahæst í liði Njarðvíkur með 23 stig en hjá Grindavík var Ellen Nystrom atkvæðamest með 22 stig.

Í úrslitunum mætir Njarðvík liði Hauka, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar. Haukar tryggðu sig áfram með 3-1 sigri gegn Keflavík í sinni undanúrslitaviðureign. Úrslitaeinvígið hefst strax á föstudaginn þegar flautað verður til fyrsta leiks.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -