HomeBónus deildinBónus deild karla„Fyrir neðan allar hellur“ – Goðsögnin Helgi Jónas tætir í sig skipulag...

„Fyrir neðan allar hellur“ – Goðsögnin Helgi Jónas tætir í sig skipulag Grindavíkur

Grindvíkingurinn og fyrrum körfuboltakappinn Helgi Jónas Guðfinnsson lét í sér heyra á samfélagsmiðlum eftir að Valur jafnaði metin í undanúrslitaeinvígi liðanna. Helgi, sem þekkir meistarataktana manna best í Grindavík, sparaði ekki stóru orðin og kallaði skipulagsleysi liðsins hreinlega „fyrir neðan allar hellur“ í harðri færslu á Facebook.

Það ríkir því mikil spenna fyrir oddeliknum í Grindavík, en þessi opna gagnrýni frá goðsögn félagsins setur aukna pressu á leikmannahópinn. Helgi á sjálfur hagsmuna að gæta á vellinum þar sem sonur hans, Arnór Tristan, er í eldlínunni með liðinu sem nú þarf að svara fyrir sig í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum.

Fréttir
- Auglýsing -