Fjórði leikur í undanúrslitum á milli Vals og Grindavíkur fór fram í kvöld í N1 höllinni. Heimamenn í Val voru með bakið upp við vegg og urðu að vinna til að knýja fram hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitum. Fyrri leikir þessara liða hafa verið æsispennandi, ef frá er talið síðustu mínútur í síðasta leik. Fyrsti leikhluti var sveiflukenndur, Grindavík byrjaði betur en Valsmenn tóku síðan öll völd. Það var síðan öfugt í öðrum leikhluta, Valsmenn yfirspiluðu Grindavík en gestirnir náðu að klóra í bakkann. Það var síðan hörkuleikur í seinni hálfleik sem endaði með naumum sigri Valsmanna 85-79.
Það var einhver smá skrekkur í Valsmönnum í upphafi leiks, ílla útfærðar sóknir og hálfgert ráðaleysi í gangi. Grindavík nýtti sér það ágætlega og náði frumkvæðinu til að byrja með. Valsmenn náðu sínum vopnum og jöfnuðu leikinn og komust svo yfir. Valur leiddi eftir fyrsta leikhluta 23-18.
Valsmenn byrjuðu annan leikhluta með látum og settu niður fyrstu 8 stigin. Grindavík tók leikhlé þegar Valur var að vinna leikhlutann 13-2, enda staðan orðin dökk þó ekki ómögleg. Grindavík fór allavega að spila betri og meiri ákefð í vörninni. Gestirnir fóru að minnkamuninn, skoruðu 9 stig í röð. En Valsmenn fóru í hálfleikinn með 8 stiga forystu, 47-39.
Aftur byrjðu heimamenn betur, voru grimmair og ákveðnari, gestirnir voru ekkert alltaf alveg sammála dómurunum og höfðu kannski stundum eitthvað til síns máls. Þegar Valsmenn voru komnir með 14 stiga forystu þá var Jóa nóg boðið og tók leikhlé. Skömmu síðar tók Finnur leikhlé, enda Pargo nýbúinn að setja tvo þrista niður. Leikhlutinn var annars nokkuð jafn, alveg þangað til í lokin að Grindavík náðu að minnka muninn í sex stig, 69-63 fyrir Val eftir 3 leikhluta.
Grindavík voru ekki lengi að jafna leikinn og úr varð hörkuspennandi leikhluti, Valsmenn alltaf aðeins með undirtökin, en samt engin munur og sigurinn gat svo sannarlega dottið báðum megin. Það var mikill darraðadans síðustu mínúturnar, Callum með furðulega körfu og síðan missa Grindavík boltann klaufalega. Á endanum tók reynsla Valsmanna þetta heim, 85-79.
Hjá Valsmönum var Igor Marci með 19 stig, Woods var með 17 stig og svo kom Hjálmar með 15 stig. Kristófer tók 14 fráköst. Hjá Grindavík var Pargo með 22 stig og Kane með 20 stig . Semple var með 13 fráköst.
Úrslitaleikurinn um að komast í úrslitaleikinn fer fram í Grindavík miðvikudaginn 6. maí.




