HomeBónus deildinBónus deild kvennaGeta tryggt sér sæti í úrslitum í kvöld

Geta tryggt sér sæti í úrslitum í kvöld

Spennan er í hámarki í undanúrslitum Bónus deildar kvenna þegar Grindavík tekur á móti Njarðvík í HS Orku-höllinni.

Grindavík leiðir einvígið 2-1 eftir að hafa unnið fyrstu tvo leikina, en Njarðvíkingar sýndu mikinn karakter með því að knýja fram sigur í síðasta leik og halda spennunni lifandi. Sigur hjá Grindavík í kvöld myndi senda þær beina leið í úrslit, en Njarðvík ætlar sér vafalaust að jafna metin og knýja fram oddaleik.

Það er ekki bara í þessu einvígi sem hlutirnir eru tæpir, því staðan er nákvæmlega sú sama í viðureign Hauka og Keflavíkur þar sem Hafnarfjarðarliðið leiðir 2-1.

Leikur kvöldsins

Bónus deild kvenna – Undanúrslit

Grindavík Njarðvík – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -