Haukar og Keflavík háðu sinn þriðja bardaga í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal á Ásvöllum í í Hafnarfirði kvöld. Leiknum lauk með nokkuð sannfærandi sigri Hauka í skemmtilegum baráttuleik; heimastúlkur unnu með 86 stigum gegn 70 og eru nú 2-1 yfir í einvíginu,en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.
Sara Rún Hinriksdóttir leikmaður Keflavíkur sagði að lið sitt “hefði tapað alltof mörgum boltum – við hentum boltanum frá okkur alltof oft og þær fengu ansi margar auðveldar körfur vegna þess, og það gengur ekki gegn svo sterku liði sem Haukar eru.” Hún segir að Keflavík verði að fækka töpuðum boltum og spila mun ákafari og harðari vörn en þær gerðu í kvöld. “Þær eru með virkilega gott lið sem er erfitt viðureignar, en það erum við líka með; ég tel alveg að við eigum að geta ráðið við þær, hvort sem er inni í teig eða fyrir utan – þetta eru tvö hörkulið en ég er á því að ef við bætum leik okkar eftir þetta tap og lærum af honum munum við alveg geta unnið þær í næsta leik og ég trúi því að við getum það og trúi því að við munum gera það” sagði Sara Rún í spjalli við Körfuna að leik loknum.”






