HomeBónus deildinBónus deild kvennaÞýðir lítið að gefa tommu eftir

Þýðir lítið að gefa tommu eftir

Haukar og Keflavík háðu sinn þriðja bardaga í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal á Ásvöllum í í Hafnarfirði kvöld. Leiknum lauk með nokkuð sannfærandi sigri Hauka í skemmtilegum baráttuleik;  heimastúlkur unnu með 86 stigum gegn 70 og eru nú 2-1 yfir í einvíginu,en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.

Emil Barja þjálfari Haukastúlkna var afar sáttur með leik síns liðs og sigurinn og var ánægður með baráttuna, ákefðina og sigurviljann: “Vörnin var frábær hjá okkur – algjörlega frábær og stelpurnar voru líka meira en duglegar og aggressífar að fara óhræddar upp að körfunni, sem mér hefur fundist vanta dálítið upp á í einvíginu hingað til. Við bjuggum til heilmikið með því að sækja svona upp að körfunni, fengum í kjölfarið opna þrista og fleira sem gerði leik okkar mun betri en síðast.” Emil nefndi að aggressjónin í vörninni – en Haukar pressuðu oft ansi stíft á gestina út um allan völl og það var greinilega mikil orka í liðinu og undir það tók Emil heilshugar: “Keflavík er einfaldlega með hörkulið, bara topplið, og það þýðir lítið að gefa tommu eftir því þær geta verið fljótar að refsa eins og góð lið gera ef þú slakar eitthvað á. Við getum ekkert og munum ekkert slaka á þótt þessi sigur sé í höfn – það væri galið á móti svona góðu liði, en það er samt klárt mál að við ætlum að leggja allt í sölurnar til að klára einvígið í Keflavík en það verður ekki auðvelt verkefni enda hefur aldrei verið auðvelt að sækja sigur þangað” sagði Emil Barja þjálfari Hauka í leikslok við blaðamann Körfunnar. 

Fréttir
- Auglýsing -