Haukar og Keflavík háðu sinn þriðja bardaga í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal á Ásvöllum í í Hafnarfirði kvöld. Leiknum lauk með nokkuð sannfærandi sigri Hauka í skemmtilegum baráttuleik; heimastúlkur unnu með 86 stigum gegn 70 og eru nú 2-1 yfir í einvíginu,en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.
Hörður Axel Vilhjálmsson var að vonum frekar svekktur með niðurstöðiuna en bar sig vel og telur að lið sitt geti gert mun betur en í kvöld og er hann klár á því að lið hans muni gera það í fjórða leik liðanna sem fram fer í Keflavík: “Við verðum og ætlum okkur að gera betur í næsta leik því annars er þetta bara búið. Liðið er ekki tilbúið að gefast upp og ég og stelpurnar höfum fulla trú á því að við munum mæta í fjórða leikinn af meiri krafti og spila betur og markmiðið er einfaldlega að sækja sigur og þar með oddaleik.”
Aðspurður sagði Hörður Axel að Haukaliðið hefði “hreinlega verið mun aggressífara bæði í vörn og sókn” og nefndi hann einnig að “orkan var meiri í Haukaliðinu þegar á heildina er litið og þetta í raun og veru skildi liðin að í þessum leik. Þær voru einfaldlega ákveðnari en við í svo mörgum þáttum leiksins og þetta verðum við að bæta. Ég hefði viljað sjá meiri ákafa í sóknarleiknum og við þurfum bara að sækja sigra með aggressjón í öllum sem við gerum. Þær áttu svör við leik okkar og nú er það okkar að finna svör við leik þeirra – bæði í vörn og sókn og sækja sigur með ákafa, látum og góðri spilamennsku í næsta leik. Bara áfram gakk” sagði Hörður Axel þjálfari Keflavikur að leik loknum í samtali við Körfuna.






