Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við þjálfarateymi meistaraflokks karla, þá Rúnar Inga Erlingsson og Loga Gunnarsson. Hafsteinn Sveinsson, formaður deildarinnar, lýsir yfir mikilli ánægju með störf þeirra og segir stjórnina spennta fyrir áframhaldandi uppbyggingu liðsins, en undirbúningur fyrir næsta tímabil er þegar kominn á fullt skrið.
Á nýafstöðnu tímabili stýrðu þeir Rúnar og Logi liðinu í áttunda sæti deildarinnar. Njarðvíkingar féllu úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar þar sem liðið tapaði 3-1 í viðureign sinni gegn deildarmeisturum Grindavíkur.






