Njarðvíkingar minnkuðu muninn 1-2 í undanúrslitum gegn Grindavík í Bónusdeild kvenna í kvöld. Lokatölur 94-88 í leik þar sem Njarðvík leiddi frá upphafi til enda.
Bestu kaflar Grindavíkur í kvöld komu helst til of seint og slök skotnýting framan af leik var dýrt spaug. Dinkins átti enn einn stórleikinn fyrir Njarðvík með 31 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Hjá Grindavík voru Ellen Nyström og Abby Beeman báðar með 23 stig.
Karfan spjallaði við Einar Árna Jóhannsson leikmann Njarðvíkur eftir leik í IceMar höllinni.






