HomeBónus deildinBónus deild karlaHnéskeljarbrotnaði í leik gærkvöldsins

Hnéskeljarbrotnaði í leik gærkvöldsins

Tímabilinu er lokið hjá Frank Aron Booker, lykilmanni Vals, eftir að hann samkvæmt Vísi hnéskeljarbrotnaði í öðrum leik liðsins gegn Grindavík í gærkvöldi.

Frank þurfti að yfirgefa völlinn strax í fyrsta leikhluta og staðfestu rannsóknir á sjúkrahúsi síðar um kvöldið að meiðslin væru alvarleg. Ljóst er að hans bíður nú krefjandi endurhæfing og mun hann ekki taka frekari þátt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í ár.

Þetta er mikið skarð fyrir Valsmenn að fylla enda hefur Frank verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Staðan í einvíginu við Grindavík er jöfn eftir sigur Vals í gær og mætast liðin næst á fimmtudaginn án framlags framherjans öfluga.

Fréttir
- Auglýsing -