HomeBónus deildinBónus deild karlaUmfjöllun: Valsmenn jafna eftir sigur á Grindavík

Umfjöllun: Valsmenn jafna eftir sigur á Grindavík

Undanúrslitaeinvígi Vals og Grindavíkur hélt áfram í kvöld, leikur númer 2. Grindavík vann nauman sigur í fyrsta leiknum eftir að hafa verið undir nánast allan leikinn. Það  mátti því alveg búast við hörkuleik í kvöld. Eins og allir leikirnir hafa verið hjá Val í þessari úrslitaseriu.  Leikurinn var svo sannarlega jafn og spennandi, fyrstu tveir leikhlutarnir voru jáfnir, þriðji leikhlutinn einnig mjög spennandi, en í fjórða leikhluta náðu Valsmenn upp smá forskoti og sigldu þessu heim.

Eitthvað voru mönnum mislagðar hendur í upphafi leiks, bæði lið þurftu aðeins að hrista úr sér spenninginn.  Það var reyndar einn hjá Grindavik sem virtist ekki vera vitund  taugastrekktur, DeAndre Kane, hann virtist ætla að vera Valsmönnum aftur erfiður.  Booker meiddist og lá óvígur á gólfinu og virtist sárþjáður. Það var síðan fallegt stund þegar áhagendur Grindavíkur byrjuðu að kalla nafnið hans. Annars var leikhlutinn jafn og spennandi  og staðan eftir leikhlutann var 19-19.

Grindavík byrjaði síðan annan leikhluta aðeins betur, munaði þar helst að Pargo fór að sína snilli sína. Valsmenn hresstust eftir leik hlé og minnkuðu fljótt muninn, Igor Maric átti virkilega góða innkomu og setti niður nokkrar þriggja stiga. Enn var allt í járnum, liðin fóru jöfn af velli í hálfleik, 41-41.

Þriðji leikhluti var síðan í járnum, það var gleðiefni fyrir Val að Kári Jóns setti nðiur sín fyrstu stig og síðan aðra þriggja skömmu síðar. Það sáu það allir í höllinni hvað þetta skipti hann máli, með þessum stigum náðu Valsmenn mestu forystu hingað til, eða 8 stig.  Grindavík voru fljótir að minnka muninn í 3 stig.  Kristófer Breki mieddist og þurfti að fara útaf, stuðningsmenn Vals launuðu greiðann og kölluðu nafn Breka.  Valsmenn leiddu eftir þriðja leikhluta 60-57.

Valsmenn áttu síðan fína byrjun og skorðu fyrstu 8 stigin þegar Jóa var nóg boðið og tók leikhlé.  Óli Óla átti í kjölfarið geggjaðan þrist, en Valsmenn héldu sínu forskoti og rúmlega það. Grindavík reyndu eins og þeir gátu að minnka muninn og náðu oft fínum körfum, en náðu ekki stoppi hinum megin.  Eitthvað fór mótlætið ílla í suma hjá Grindavík og munaði minnstu að hnefar færu á flug, en það var fljótt settlað.  En þrátt fyrir hetjulega baráttu gestanna, þá fór það svo að Valsmenn fóru með sigur af hólmi, 79-72.

Hjá Valsmönnum var Kári Jóns stighæstur með 16 stig, öll í seinni hálfleik. Callum var með 16 stig og Kristófer með 12 stig og 14 fráköst. Kane var atkvæðamestur hjá Grindavík með 22 stig 12 fráköst, Semple var með 18 stig og Óli Óla setti 16 stig.

Þriðju leikurinn verður síðan í Grindavík 30. apríl.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -