HomeFréttirViltu fullkomna skotið þitt? Heimsþekktar skotbúðir aftur í Njarðvík – Skráðu þig...

Viltu fullkomna skotið þitt? Heimsþekktar skotbúðir aftur í Njarðvík – Skráðu þig áður en það fyllist!

Njarðvík mun halda flottar körfuboltabúðir annað árið í röð í samstarfi við Shooting club skotbúðirnar sem hafa farið víðsvegar um Evrópu. Búðirnar eru í umsjá Peter Rajniak sem er aðalþjálfari búðanna sem einblína sérstaklega á skottækni og skot í öllum aðstæðum. Hann er skotþjálfari A-landsliðs Luxembourg og starfar fyrir körfuknattleikssambandi þeirra ásamt því að sinna verkefnum með öðrum landsliðum og félagsliðum tengt skottækni.

Búðirnar verða 29.-31. maí í IceMar Höllinni í Njarðvík. Þetta eru þriggja daga búðir og bætist við einn dagur frá því á síðasta ári . Peter er fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður og tenging hans við Njarðvík er að hann og Logi Gunnarsson voru liðsfélagar á Spáni sem atvinnumenn. 

Hér eru allar upplýsingar um búðirnar og skráningarlinkur á skotbúðirnar 

Mælt er með að allir skrái sig sem fyrst því á síðasta ári var uppselt í búðirnar. Búðirnar eru í boði fyrir iðkendur fædda 2007 til 2016. Búðirnar verða aldursskiptar, upplýsingar um tíma hvers aldurs er í skráningar linknum. Allir fá boli og sokka merkta búðunum. Iðkendur annara félaga eru einnig velkomnir. 

Fréttir
- Auglýsing -