HomeBónus deildinBónus deild kvennaGefa Grindvíkingum sumargjöf

Gefa Grindvíkingum sumargjöf

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur ákveðið að bjóða öllum Grindvíkingum ókeypis aðgang á leik meistaraflokks kvenna í undanúrslitum Bónus deildarinnar gegn Njarðvík sem fram fer í kvöld klukkan 19:15. Skilyrðið fyrir gjaldfrjálsum aðgangi er að stuðningsmenn mæti klæddir í Grindavíkurbúning eða annan einkennisfatnað félagsins.

Leikurinn er liður í því að þjappa samfélaginu saman og hvetja fólk til að styðja við bakið á sínu liði í mikilvægri rimmu. Forráðamenn deildarinnar hvetja bæjarbúa til að fjölmenna í gulu og bláu og skapa góða stemningu á pöllunum til að hjálpa hópnum að sækja sigur gegn grönnunum úr Njarðvík.

Fréttir
- Auglýsing -