HomeFréttirLeita að yfirþjálfara

Leita að yfirþjálfara

Körfuknattleiksdeild Hamars í Hveragerði auglýsir nú eftir metnaðarfullum og áhugasömum yfirþjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Starfið er hlutastarf en því fylgir einnig sá möguleiki að þjálfa einstaka flokka samhliða yfirumsjóninni. Helstu verkefni nýs yfirþjálfara munu felast í ráðningu og leiðsögn þjálfara, stefnumótun og skipulagningu fyrir yngri flokkana ásamt samskiptum við foreldra og samstarfi við aðrar deildir og hagsmunaaðila.

Leitað er að einstaklingi með reynslu af þjálfun barna og unglinga í körfubolta sem býr yfir framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni. Menntun í þjálfun er talin kostur og lögð er áhersla á faglega vinnubögð. Áhugasamir þurfa að senda inn umsóknir á netfangið [email protected] en umsóknarfrestur er til 30. apríl 2026. Tryggvi Oddsson veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 8253874.

Fréttir
- Auglýsing -