HomeBónus deildinBónus deild karlaHvernig fer í Síkinu í kvöld?

Hvernig fer í Síkinu í kvöld?

Undanúrslit Bónus deildar karla fara af stað með miklum látum þegar Tindastóll tekur á móti Stjörnunni í Síkinu í kvöld. Bæði lið mæta full sjálfstrausts inn í þessa seríu eftir sannfærandi sigra í átta liða úrslitunum. Tindastóll fór tiltölulega þægilega í gegnum sína fyrstu hindrun með því að leggja ÍR að velli í þremur leikjum, á meðan Stjarnan sýndi mikinn styrk með því að slá KR-inga út með þremur sigrum gegn einum.

Þar sem þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í sjálfum úrslitaeinvíginu er ljóst að fyrsti leikurinn getur sett tóninn fyrir framhaldið. Sauðkrækingar treysta á sinn sterka heimavöll og kraftmikla stuðningsmenn til að ná undirtökunum strax í byrjun. Garðbæingar hafa hins vegar sýnt að þeir geta unnið hvar sem er og munu mæta dýrvitlausir í baráttuna um þennan mikilvæga fyrsta sigur í seríunni.

Leikur dagsins

Bónus deild karla – Undanúrslit

Tindastóll Stjarnan – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -