Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Strikerinn og Jónfrí fara yfir allt það helsta fyrir undanúrslit Bónus deildarinnar.
Stóra spurningin er hvort Stjarnan eigi einhverja möguleika gegn firnasterku liði Tindastóls nú þegar ljóst er að Garðbæingar verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Þá er rætt hvort Valur mæti með aukna orku úr fimm leikja seríunni gegn Keflavík eða hvort ferskir Grindvíkingar muni einfaldlega hlaupa yfir þá. Að lokum er farið yfir stöðuna í Keflavík og velt upp þeirri sprengju hvort stórstjarnan Remy Martin gæti snúið aftur til liðsins á næsta tímabili.
Þá er einnig farið yfir nokkra hluti sem Aukasendingin vill sjá í undanúrslitunum. Hér fyrir neðan er hægt að sjá listann og umræðuna er að nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

5 hlutir sem Aukasendingin vill sjá í undanúrslitunum
- Bæði einvígi í oddaleik: Það er ekkert sem toppar spennuna þegar allt er undir í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitunum.
- Nabla-móment í Síkinu: Að það komi upp vafasamt atvik eða hiti í einvígi Tindastóls og Stjörnunnar sem verður þess valdandi að Nablinn þarf að þjarma almennilega að þjálfurunum í viðtali. Við viljum sjá eitthvað sem verður rætt í þaula eftir leik.
- Óla Óla-sýningu: Ólafur Ólafsson hefur sýnt það tvisvar í vetur að hann getur sett niður fimm þrista í leik. Við viljum sjá hann endurtaka þann leik og kveikja í stúkunni.
- Stjörnu-sjokk í fyrsta leik: Þar sem flestir hafa litla trú á Stjörnunni vegna meiðslanna væri ekkert skemmtilegra en að þeir myndu mæta og ræna sigri í Síkinu strax í fyrsta leik til að opna einvígið upp á gátt.
- Heilan Kára Jóns: Að Kári Jónsson verði klár í slaginn og geti beitt sér af fullum krafti gegn Grindavík, enda vilja allir sjá bestu leikmenn deildarinnar takast á þegar mest á reynir.






