HomeBónus deildinBónus deild karlaAukasendingin: Eru Stólarnir óstöðvandi, Grindavík í gírnum og snýr Remy Martin aftur?

Aukasendingin: Eru Stólarnir óstöðvandi, Grindavík í gírnum og snýr Remy Martin aftur?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera.

Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér storminn gegn firnasterku liði Tindastóls, sérstaklega þar sem þeir verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Á sama tíma er velt upp hvort Valur mæti með aukna orku og sjálfstraust inn í einvígið gegn Grindavík eftir að hafa haft betur í krefjandi fimm leikja seríu gegn Keflavík, eða hvort þreytan fari að segja til sín gegn deildarmeisturunum.

Umræðan snýst einnig að því hvort Grindavík geti haldið sínu striki og haldið áfram að vinna mikilvæga leiki eða hvort Stólarnir séu einfaldlega á þeim stað að þeir muni rúlla yfir alla mótstöðu á leið sinni að titlinum. Sérfræðingarnir fara yfir styrkleika Tindastóls sem virðist vera að toppa á réttum tíma en spá líka í spilin hjá þeim liðum sem eru komin í sumarfrí. Sérstök athygli er beind að Keflavík og hvaða breytingar þurfi að eiga sér stað í herbúðum þeirra í sumar til að liðið geti aftur blandað sér af alvöru í baráttuna um stóru titlana á næsta tímabili.

Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fréttir
- Auglýsing -