HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindvíkingar tóku forystuna

Grindvíkingar tóku forystuna

Grindavík tók forystuna í einvígi sínu gegn Njarðvík í undanúrslitum Bónus deildar kvenna með 87-81 sigri á útivelli í kvöld.

Gestirnir lögðu grunninn að sigrinum með góðum fyrri hálfleik en þrátt fyrir harða atlögu Njarðvíkinga í seinni hálfleik tókst Grindavík að sigla sigrinum í höfn í fjórða leikhluta.

Brittany Dinkins fór mikinn fyrir Njarðvík með 31 stig og 9 fráköst en það dugði ekki til gegn jafnara liði Grindavíkur þar sem Farhiya Abdi og Isabella Ósk Sigurðardóttir fóru fyrir sínum konum. Grindavík leiðir nú einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Frekari umfjöllun er væntanleg

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -