Spennan er í hámarki fyrir leik kvöldsins í Vallaskóla þar sem Selfoss tekur á móti Sindra í öðrum leik undanúrslita fyrstu deildar karla.
Sindri leiðir einvígið eftir sigur í fyrsta leiknum á Höfn og getur með sigri í kvöld komist í vænlega stöðu í undanúrslitunum, þar sem vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið.
Bæði lið hafa sýnt mikinn styrk í vetur og leikurinn á Höfn var hnífjafn og spennandi allt til loka. Selfyssingar treysta á sterka heimavöllinn sinn og þann meðbyr sem fylgir stuðningsmönnum í Vallaskóla, á meðan Hornfirðingar mæta fullir sjálfstrausts eftir að hafa tekið frumkvæðið í seríunni.
Leikur dagsins
Fyrsta deild karla – Undanúrslit
Selfoss Sindri – kl. 19:15





