Í kvöld fer fram oddaleikur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem Valur og Keflavík mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum. Búast má við mikilli spennu á Hlíðarenda enda hafa bæði lið sýnt mikla hörku í þessu einvígi hingað til og mikið er í húfi fyrir bæði félög.
Leikurinn fer fram í N1-höllinni og er þetta tækifærið fyrir annað hvort liðið að tryggja áframhaldandi þátttöku í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Undanúrslitin sjálf hefjast svo eftir helgina, en siguvegari kvöldsins mun mæta deildarmeisturum Grindavíkur.
Leikur dagsins
Bónus deild karla – 8 liða úrslit
Valur Keflavík – kl. 19:15





