HomeÚti í heimiEvrópaBilbao í baráttu um úrslitakeppnissæti

Bilbao í baráttu um úrslitakeppnissæti

Bilbao er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta þegar aðeins átta leikir eru eftir af tímabilinu. Liðið situr nú í níunda sæti með 30 stig eftir naumt tap gegn Manresa í dag.

Leikurinn endaði 84:80 fyrir gestina í Manresa, en íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lét mikið að sér kveða í liði Bilbao. Hann spilaði í 22 mínútur og skilaði góðu framlagi; skoraði 10 stig, greip fimm fráköst og deildi út þremur stoðsendingum á samherja sína.

Fréttir
- Auglýsing -