HomeBónus deildinBónus deild karlaSjötti maðurinn X Hlynur Bæringsson: Hitinn í úrslitakeppninni krufinn til mergjar

Sjötti maðurinn X Hlynur Bæringsson: Hitinn í úrslitakeppninni krufinn til mergjar

Nýjasti þátturinn af Sjötta manninum er kominn í loftið þar sem enginn annar en Hlynur Bæringsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, mætir í settið. Það er af nógu að taka þegar farið er yfir dramatíkina í úrslitakeppni Bónus deildarinnar.

Í þættinum er farið yfir sigur Stjörnunnar gegn KR, vinnusemi Grindvíkinga og þau vonbrigði sem fylgdu falli Þórsara úr deildinni. Þá er rýnt í lætin í Skagafirði og spáð í framhaldið hjá þeim liðum sem eftir standa í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn þar sem spennan er á suðupunkti.

Hlynur er enn ríkjandi Íslandsmeistari með Stjörnunni, en hann lagði skóna á hilluna eftir titilinn síðasta vor.

Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Fréttir
- Auglýsing -