Í öðrum þætti af Filo og Gugga í boltanum halda þær stelpurnar á Hlíðarenda þar sem spennan er á suðupunkti hjá karlaliði Vals. Eftir fjóra æsispennandi leiki gegn Keflavík er staðan í einvíginu jöfn og allt undir þegar liðin mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Bónus deildarinnar á sunnudaginn.
Filo og Gugga fylgdust með undirbúningnum og könnuðu hvort leikmenn væru ekki örugglega með taktíkina og fögnin á hreinu fyrir stóra daginn. Ólíkt því sem gerðist í heimsókn þeirra til Keflavíkur fóru þær í ítarlegri spjall við hópinn í þetta skiptið. Þær fengu leikmenn í viðtöl til að mæla stemninguna og ræddu svo við Finn Frey þjálfara.
Inni á milli æfinga og spjalls sýndu þeir Booker og Kalli mikla hörku þegar þeir skelltu sér í ísbað til að klára endurheimtina, enda líkamlegt álag mikið í svona löngu einvígi. Það er ljóst að Valsmenn ætla ekki að láta neitt eftir liggja þegar flautað verður til leiks á sunnudaginn og stelpurnar fengu að finna fyrir því að menn eru klárir í slaginn.





