Stjarnan greindi frá því í dag að bakvörðurinn Ægir Þór Steinarsson hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum í leik liðsins í gærkvöldi. Niðurstaða rannsókna sýndi að hann er olnbogabrotinn.
Ægir gekkst undir aðgerð strax í gærkvöldi og samkvæmt tilkynningu félagsins heppnaðist hún vel. Bataferli hans er nú hafið, en ekki fylgdi sögunni hversu lengi hann verður frá keppni.
Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitum með sigrinum í gær og hefur félagið boðað nánari upplýsingar um miðasölu fyrir þá leiki á morgun. Í tilkynningunni kom jafnframt fram þakklæti til stuðningsmanna liðsins fyrir frammistöðu þeirra á pöllunum.





