HomeBónus deildinBónus deild karlaFilo og Gugga í boltanum: Heimsókn til Keflavíkur!

Filo og Gugga í boltanum: Heimsókn til Keflavíkur!

Loksins er fyrsti þátturinn af Filo og Gugga í boltanum lentur!

Stelpurnar mæta galvaskar til Keflavíkur til að kíkja á undirbúninginn fyrir 8-liða úrslitin í Bónus deildinni. Það er mikil spenna í loftinu og Filo og Gugga þurftu að fá það á hreint hvort leikmennirnir væru ekki örugglega með fögnin sín 100% „ready“ – því það er ekki nóg að vera góður í körfu, þú þarft líka að eiga rétta „move-ið“ eftir körfuna!

Eftir algjöran geðveikisleik síðasta laugardag var spurningin bara: hvernig er andinn í hópnum? Keflavík er 2-1 undir á móti Val, svo það er bakið upp við vegg og „do or die“ stemning í gangi. Filo og Gugga tóku púlsinn á klefanum, tjékkuðu á undirbúningnum og komust að því hvort strákarnir séu ekki alveg dýrvitlausir í að jafna einvígið. Er Keflavík að fara að mæta með þessa orku sem þarf?

Fréttir
- Auglýsing -