HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða lið er líklegast til að verða Íslandsmeistari 2026?

Hvaða lið er líklegast til að verða Íslandsmeistari 2026?

Aukasendingin fékk Jónfrí í heimsókn í Aukasendinguna til að rýna í úrslitakeppni Bónus deildar karla.

Farið er yfir „skipbrot“ KR í Garðabæ, sannfærandi sigur Tindastóls á ÍR og stórkostlega sigurkörfu Kára Jónssonar fyrir Val. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík og velt upp hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim.

Hérna er Aukasendingin á Spotify

Þá spáði Aukasendingin fyrir úrslitakeppni Bónus deildarinnar og lagði mat á titilmögleika liðanna. Niðurstaðan gefur skýra vísbendingu um hvaða lið eru að „toppa“ á réttum tíma og hver þeirra virðast vera að missa flugið þegar mest á reynir.

Listann má sjá hér fyrir neðan. Þá má heyra umræðuna um hann í síðustu upptöku af Aukasendingunni, sem aðgengileg er hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Stjarnan verður að teljast sigurstrangleg

Líklegastir til að verða Íslandsmeistarar 2026

  • 1. Tindastóll Sjálfstraustið á Króknum er gríðarlegt enda liðið með níu sigurleiki í röð. Eftir að hafa afgreitt ÍR af miklu öryggi, 3-0, sitja þeir einir á toppnum sem heitasta lið landsins og eru sigurstranglegastir.
  • 2. Stjarnan Garðbæingar sýndu meistaratakta með gríðarsterkum heimasigri í leik þrjú gegn KR síðustu helgi. Breiddin í hópnum er fáheyrð og sem ríkjandi meistarar vita þeir nákvæmlega hvað til þarf til að fara alla leið aftur.
  • 3. Valur Hlíðarendaliðið hefur tökin í einvígi sínu gegn Keflavík án þess þó að hafa sýnt sínar bestu hliðar. Með bestu vörn deildarinnar og einstaklingsgæði í Kára Jónssyni og Keyshawn Woods, eru þeir lið sem enginn vill mæta í úrslitum.
  • 4. Grindavík Deildarmeistararnir hafa valdið vonbrigðum í fyrstu umferðinni gegn baráttuglöðum Njarðvíkingum. Þrátt fyrir mikil gæði virkar hópurinn örlítið lúinn og útlitið fyrir að þeir komist í gegnum undanúrslitin er ekki gott sem stendur.
  • 5.-7. KR, Njarðvík og Keflavík Allt lið eiga það sameiginlegt að spila glimrandi körfubolta á köflum í upphafi úrslitakeppni en skorta stöðugleika til að vera talin líkleg til stórræða. Miðað við stöðuna yrði það hreinasta afrek fyrir öll lið að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Fréttir
- Auglýsing -