Aukasendingin fékk Jónfrí í heimsókn í Aukasendinguna til að rýna í úrslitakeppni Bónus deildar karla.
Farið er yfir „skipbrot“ KR í Garðabæ, sannfærandi sigur Tindastóls á ÍR og stórkostlega sigurkörfu Kára Jónssonar fyrir Val. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík og velt upp hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim.
Hérna er Aukasendingin á Spotify
Þá er einnig farið yfir nokkur af skemmtilegustu augnablikum úrslitakeppninnar til þessa, en listann má sjá hér fyrir neðan. Þá má heyra umræðuna um hann í síðustu upptöku af Aukasendingunni, sem aðgengileg er hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Fimm skemmtileg atvik úr úrslitakeppninni
- Símasambandið í Ásgarði: Stubb-appið neitaði að virka vegna sambandsleysis fyrir leik þrjú gegn KR og fólk beið úti í kuldanum. Toppurinn var þó þegar áhorfendur komust loks inn og sáu kosningaloforð Hlyns Bæringssonar og Framsóknar á LED-skiltunum: „Símasamband í Ásgarð“.
- Tæknivillan á Daníel: Finnur Freyr situr í eyranu á dómurunum allan leikinn en Daníel fær tæknivillu nánast um leið og hann fórnar höndum. Það er augljóslega munur á því hverjir komast upp með hvað.
- Lasar sem „Prime LeBron“: Lasar mætti í annan leikinn gegn Keflavík eins og hann ætlaði að leika allar stöður á vellinum samtímis. Valshjartað sló örar þar til hann fékk sína fjórðu villu; skrifum þetta á of mikið pre-workout.
- Undrun Seth LeDay: Eftir 85 villur á tímabilinu er Seth enn jafn hissa í hvert skipti sem flautað er. Það væri athugandi fyrir hann að skoða myndböndin og „adjusta“ aðeins miðað við viðbrögðin.
- Stjórnarmenn gegn Milka: Þó slagsmál séu alvarleg, þá er eitthvað kostulegt við það þegar stjórnarmenn í Grindavík ætla að „taka“ Dominykas Milka af öllum mönnum.




