HomeÚti í heimiEvrópaAlba Berlín í harðri toppbaráttu

Alba Berlín í harðri toppbaráttu

Alba Berlín fór létt með lið Ludwigsburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag þar sem lokatölur urðu 101:77. Martin Hermannsson fór fyrir sínum mönnum og var stigahæstur í leiknum með 15 stig, en auk þess gaf hann fimm stoðsendingar og tók eitt frákast á þeim tæpu tuttugu mínútum sem hann spilaði.

Með þessum sigri fylgir liðið fast á hæla toppliðs Bayern München en bæði lið eru nú með 40 stig á efsta sæti deildarinnar. Á meðan Alba Berlín styrkir stöðu sína í öðru sætinu situr Ludwigsburg eftir í áttunda sæti með 30 stig eftir tapið í dag.

Fréttir
- Auglýsing -