Tindastóll tók á móti ÍR í þriðja leik liðanna á Sauðárkróki í kvöld.
Leikurinn byrjaði fjörlega og í fyrsta leikhluta var mikið jafnræði á milli liðanna en Tindastóll náði þó að slíta sig örlítið frá gestunum úr Breiðholti staðan 29-22.
Í öðrum leikhluta mættu ÍR-ingar tilbúnir í verkefnið og frábær skotnýting Tómasar Orra reyndist heimamönnum erfið. Rétt fyrir hálfleik meiðist svo Tómas Orri. En liðin héldu inn í hálfleikinn með aðeins fjögra stiga mun. 52-48.
Tölfræði leiksins
Þriðji leikhluti hófst á 3 stiga körfu frá Jacob Falco og aðeins eitt stig skildu liðin að, en eftir það gerði stólarnir sér lítið fyrir og settu 41 stig gegn aðeins 8 stigum ÍR, greinilegt að fráhvarf Tómasar hafði slæm áhrif á bæði sóknar og varnarleiks Breiðhyltinga. Heimamenn gengur á lagið og kláruðu leikinn og þar með seríuna. Lokatölur í þessum leik 125-87.
Atkvæðamestir hjá Tindastól voru Taiwo Badmus með 25 stig, 10 fráköst, 3 stoðsendingar ásamt þremur stolnum boltum og Daniel Dolenc sem kom sterkur inn af bekknum með 21 stig, 6 fráköst og eina stoðsendingu.
Hjá ÍR voru það Jacob Falco með 14 stig, eitt frákast og 8 stoðsendingar og svo Tómas Orri sem spilaði einungis fyrri hálfleikinn með 13 stig, 3 fráköst og eina stoðsendingu.
Viðtöl :
Tindastóll sópaði ÍR í sumarfrí
Fréttir




