Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson og sá raunverulegi Tómas Steindórsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir tímabilið í Bónus deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst á morgun.
Run & Gun fór meðal annars yfir upphaf úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem hávær gagnrýni kom fram á tíð hlé vegna skjáskoðana dómara. Máté telur að draga verði úr þessari „skjáfíkn“ sem eyðileggur flæði leiksins.
Meðal tillagna eru að fá fagaðila til að stýra tæknibúnaði svo skoðun gangi hraðar og hafa sérfræðing í eyra dómara sem leiðréttir augljós atriði á fimm sekúndum. Þá eru þjálfarar og leikmenn hvattir til að hætta óþarfa kröfum um skjáskoðun í von um að blekkja dómarana.
Umræðu Run & Gun er hægt að sjá hér fyrir neðan og þá er hægt að hlusta á umræðuna í síðustu upptöku hlaðvarpsins hér.





