Aukasendingin mætti aftur til leiks í gær þar sem ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur fékk góðkunningjana Árna ,,Striker” Jó og Jónfrí í heimsókn.
Farið var yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið lið Stjörnunnar er og af hverju Tindastóll virkar líklegasta liðið til stórræða þessa stundina. Spennan í kvennaboltanum er sömuleiðis á borðinu, sérstaklega rosalegur endir á leik Njarðvíkur og Tindastóls þar sem Brittany Dinkins sýndi enn og aftur að hún er hreinlega geggjuð á vellinum.
Hérna er Aukasendingin á Spotify
Í nýjasta þættinum var einnig rýnt í frammistöðu þeirra erlendu leikmanna sem hafa látið mest að sér kveða í upphafi úrslitakeppni Bónus deildarinnar. Þessir leikmenn hafa dregið vagninn fyrir sín lið og sýnt stöðugleika í þeim tölfræðiþáttum sem vega þungt þegar mikið er undir.
Umræðuna er hægt að nálgast í nýjustu Aukasendingu, sem aðgengileg er hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

- Linards Jaunsems (KR): 27,5 stig, 7,5 fráköst og 1,5 stoðsendingar. Skilaði hæsta heildarframlaginu á listanum og var afar atkvæðamikill á báðum endum vallarins.
- Keyshawn Woods (Valur): 23,5 stig, 5,5 fráköst og 3,0 stoðsendingar. Með svakalega nýtingu, leikmaðurinn sem Valur gat nánast alltaf treyst á að ná í stig fyrir sig.
- Dedrick Basile (Tindastóll): 25,0 stig, 7,0 fráköst og 7,0 stoðsendingar. Arkitektinn í leik Stólanna.
- Adomas Drungilas (Tindastóll): 13,5 stig, 7,0 fráköst og 2,0 stoðsendingar. Skilaði sínu með mikilli skilvirkni og var klettur í teignum.
- Jordan Semple (Grindavík): 20,0 stig, 8,0 fráköst og 4,5 stoðsendingar. Stöðugleikinn uppmálaður fyrir Grindavík fyrir utan atvikið þegar hann missti hausinn í fyrri leiknum.

Næstir inn
- Luka Gasic (Stjarnan): 14,0 stig, 8,0 fráköst og 2,0 stoðsendingar. Vann vinnuna sína vel og var sérstaklega öflugur varnarlega og í frákastabaráttunni.
- Giannis Aggravanis (Stjarnan): 17,0 stig, 7,0 fráköst og 2,0 stoðsendingar. Skilaði jöfnu og góðu framlagi í báðum leikjunum gegn KR.
- Jakob Falko (ÍR): 19,5 stig, 2,5 fráköst og 8,5 stoðsendingar. Var með hæsta meðaltal stoðsendinga og stýrði hraðanum í leik ÍR.
- Dominykas Milka (Njarðvík): 19 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Vann fyrsta leikinn eiginlega fyrir Njarðvík og náði að búa til allskonar vandræði fyrir deildarmeistara Grindavíkur.




