Tveir gríðarlega mikilvægir leikir fara fram í úrslitakeppni Bónusdeildarinnar í kvöld. Staðan í báðum einvígum er 2-0 og því geta bæði Njarðvík og Haukar tryggt sér farseðilinn í undanúrslit með sigri í kvöld, en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram.
Njarðvíkingar taka á móti Tindastól í IceMar-höllinni þar sem Skagfirðingar eru með bakið upp við vegg og verða að sigra til að halda tímabilinu á lífi. Á Ásvöllum mætast Haukar og Stjarnan, en Garðbæingar þurfa sömuleiðis á sigri að halda til að knýja fram fjórða leik í einvíginu.
Leikir kvöldsins:
- 19:00: Njarðvík – Tindastóll (IceMar-höllin)
- 19:30: Haukar – Stjarnan (Ásvellir)




