Það var rafmagnað andrúmsloft í Skógarseli þegar ÍR tók á móti Tindastóli í öðrum leik átta liða úrslita úrvalsdeildar karla árið 2026.
Fyrir leikinn leiddu gestirnir úr Skagafirði 1-0 í einvíginu og pressan var því öll á heimamönnum að jafna metin. Straumurinn í húsið var slíkur að klukkutíma fyrir leik var hvert einasta bílastæði á svæðinu upptekið og ljóst að tvær af öflugustu stuðningsmannasveitum landsins ætluðu að láta heyra í sér. Þrátt fyrir harða baráttu ÍR-inga og mikla sveiflu í leiknum, reyndust Skagfirðingar sterkari á svellinu og unnu mikilvægan 98-90 sigur.
Karfan spjallaði við Kristján Fannar Ingólfsson leikmann ÍR eftir leik í Skógarseli.




