Eftir að Keflvíkingar höfðu gert sér góða ferð að Hlíðarenda og stolið heimavallarréttinum í einvígi sínu gegn Valsmönnum náðu þeir ekki að fylgja því kviðhöggi eftir í kvöld þegar liðin mættust í Keflavík.
Eftir nokkuð skemmtilegan leik í Keflavík þar sem að gestirnir í rauðu leiddu að megninu til varð niðurstaða kvöldsins 87:82 Valssigur og eingvígið því hnífjafnt.
Karfan spjallaði við Daníel Guðna Guðmundsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í Blue höllinni.




