HomeBónus deildinBónus deild karlaTveir leikir á dagskrá átta liða úrslita í kvöld

Tveir leikir á dagskrá átta liða úrslita í kvöld

Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum Bónus deildarinnar í kvöld.

Tindastóll mætir í Skógarsel með byr undir vængjum eftir sigur í fyrsta leiknum. ÍR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda á heimavelli til að jafna einvígið og forðast það að lenda 2–0 undir gegn sterku liði Stólanna. Búast má við hörkuleik.

Keflavík getur tekið afgerandi forystu í einvíginu með sigri í Blue-höllinni í kvöld. Valur þarf hins vegar að svara fyrir tapið í fyrsta leiknum og sýna sínar bestu hliðar gegn spræku liði heimamanna.

Leikir dagsins

  • 19:00: ÍR – Tindastóll (Skógarsel)
  • 19:30: Keflavík – Valur (Blue-höllin)

Fréttir
- Auglýsing -