HomeBónus deildinBónus deild karlaVesturbærinn logaði í körfuboltaveislu: KR jafnaði einvígið gegn Stjörnunni

Vesturbærinn logaði í körfuboltaveislu: KR jafnaði einvígið gegn Stjörnunni

Það var eins og tíminn hefði verið skrúfaður aftur um nokkur ár á Meistaravöllum í kvöld. Eftir fjögurra ára bið var úrslitakeppnisstemningin mætt aftur í Vesturbæinn og það sást langar leiðir að stuðningsmenn KR höfðu beðið spenntir. Húsið var troðfullt, ríflega 1.200 manns mættir, og andrúmsloftið var rafmagnað strax frá fyrstu mínútu.

KR sigraði að lokum 91–82 í hörkuleik þar sem baráttan var algjör. Með þessum sigri jafnaði KR metin í 1-1 í þessu spennandi einvígi í Bónus deildinni og ljóst er að liðin ætla ekki að gefa neitt eftir.

Stjarnan í villuvandræðum og stöðugum deilum við dómara

Leikurinn var líkamlegur og hart var barist um hvern einasta bolta. Strax í fyrri hálfleik fór að bera á því sem einkenndi leik Stjörnunnar út kvöldið: þeir voru í miklum villuvandræðum. Leikmenn Garðabæjarliðsins virtust eiga erfitt með að sætta sig við línu dómaranna, en raunin var sú að þeir voru endalaust að slá í hendur og líkama KR-inga. Í stað þess að aðlaga sig leiknum, eyddu margir af lykilmönnum Stjörnunnar dýrmætri orku í að kvarta og kveina yfir dómgæslunni.

Þessi pirringur dró úr einbeitingu þeirra á mikilvægum augnablikum. Á meðan Stjarnan barðist við dómarana, nýtti KR sér tækifærið og sótti stíft að körfunni. Heimaliðið komst 22 sinnum á vítalínuna og nýtti þau skot vel (75%). Sú staðreynd að Stjarnan tapaði 16 boltum gegn 12 hjá KR, og að KR-ingar stálu 10 boltum, sýnir vinnusemina sem einkenndi heimamenn í kvöld. KR-ingar voru einfaldlega grimmari á boltann og létu neikvæða orku ekki trufla sig.

Linards og Þórir leiddu heimamenn til sigurs

Ef það var einhver sem átti húsið þetta kvöldið þá var það Linards Jaunzems. Hann hreinlega raðaði inn stigum og endaði með 31 stig. Hann var óviðráðanlegur á köflum og Stjörnumenn fundu engin svör við krafti hans undir körfunni eða skotunum hans. Við hlið hans var fyrirliðinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson algjörlega stórkostlegur. Þórir fyllti tölfræðiblaðið með 22 stigum, 7 fráköstum og heilum 13 stoðsendingum, auk þess sem hann stal 6 boltum.

Hjá Stjörnunni var Pablo Cesar Bertone atkvæðamestur með 19 stig, en hann kom af bekknum og virtist vera sá eini sem hélt haus þegar syrta fór í álinn. Hilmar Smári og Luka Gasic reyndu hvað þeir gátu, en skotnýting liðsins (31% í þriggja stiga skotum) var ekki nægilega góð til að koma þeim yfir í lokafjórðungnum.

Stuðningsmenn KR voru tólfti maðurinn í kvöld. Söngurinn dundi í veggjum Meistaravalla allan leikinn og yfirgnæfði algjörlega stuðningsmenn gestanna úr Garðabæ. Það er löngu vitað að það er erfitt að sækja sigur í Vesturbæinn þegar stuðningsmennirnir eru í þessum gír, og í kvöld sýndu þeir af hverju KR er eitt sögufrægasta félag landsins.

Nú flyst serían yfir í Garðabæinn, þar sem liðin mætast í ÞG verk höllinni næstkomandi föstudag. Staðan er 1-1 og allt í járnum. Ef KR tekst að halda þessari einbeitingu og Stjarnan heldur áfram að einbeita sér að dómurunum frekar en boltanum, gæti þetta einvígi farið á þann veg sem Vesturbæingar dreymir um.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Hilmar Norðfjörð)

Fréttir
- Auglýsing -