HomeÚti í heimiEvrópaDýrmætur heimasigur hjá Tryggva Snæ og félögum

Dýrmætur heimasigur hjá Tryggva Snæ og félögum

Baráttan um sæti í úrslitakeppni spænsku ACB deildarinnar harðnaði til muna í dag þegar Bilbao lagði Unicaja að velli með sextán stiga mun, 90:74. Fyrir leikinn munaði sáralitlu á liðunum í töflunni og er staðan þar enn hnífjöfn; Bilbao hefur nú unnið 15 af 26 leikjum sínum á meðan Unicaja situr eftir með 15 sigra úr 25 leikjum.

Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var vinnusamur að vanda í liði Bilbao og lét mikið að sér kveða í vörninni á þeim 25 mínútum sem hann spilaði á heimavelli sínum. Hann skilaði sjö stigum í hús, en auk þess tók hann sex fráköst, varði tvö skot og stal einum bolta í þessum mikilvæga sigri sem gæti reynst liðinu dýrmætur þegar upp er staðið á lokaspretti deildarinnar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -