HomeNeðri deildir1. deild karlaHaukar tóku forystuna og Blikar sigldu í undanúrslitin

Haukar tóku forystuna og Blikar sigldu í undanúrslitin

Tveir leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld.

Haukar stigu stórt skref í átt að undanúrslitum í kvöld með gríðarlega dýrmætum eins stigs sigri á Selfossi, 90-89, í Ólafssal. Með sigrinum taka Haukar forystuna í einvíginu, 2-1, og geta tryggt sér sæti í næstu umferð með sigri í fjórða leik liðanna. Á sama tíma lauk einvígi Breiðabliks og Skallagríms í Smáranum þar sem Blikar tryggðu sér farseðilinn í undanúrslitin með 87-80 sigri. Breiðablik vann þar með einvígið samanlagt 3-0 og fylgir Sindra eftir inn í næstu umferð.

Aðeins tvö lið eru því komin áfram í undanúrslitin; Sindri, sem sópaði Snæfelli 3-0, og Breiðablik. Enn er spenna í hinum tveimur einvígunum þar sem Haukar leiða gegn Selfossi og KV er með 2-1 forystu gegn Fjölni. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram og ljóst er að bæði Fjölnir og Selfoss munu leggja allt í sölurnar í næstu leikjum til að knýja fram oddaleiki og halda lífi í voninni um sæti í úrvalsdeild að ári.

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -