8 liða úrslit Bónus deildar karla halda áfram í kvöld með tveimur áhugaverðum viðureignum.
Tindastóll tekur á móti ÍR á Sauðárkróki, en Stólarnir enduðu í öðru sæti deildarinnar á meðan ÍR-ingar tryggðu sér sjöunda sætið. Í hinum leik kvöldsins mætast Valur og Keflavík að Hlíðarenda, en liðin voru hnífjöfn í vetur og enduðu í fjórða og fimmta sæti.
Leikir kvöldsins
- Tindastóll – ÍR kl. 19:00 (Sauðárkrókur)
- Valur – Keflavík kl. 19:30 (N1-höllin)




