HomeBónus deildinBónus deild karlaMun Remy Martin láta til sín taka í úrslitakeppninni?

Mun Remy Martin láta til sín taka í úrslitakeppninni?

Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.

Með Máté í þessum síðasta þætti eru stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson og sá grindvíski Manni Vill. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir tímabilið í Bónus deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst í kvöld.

Hérna er Run & Gun á Spotify

Úrslitakeppni Bónus deildar karla fer af stað með látum í kvöld og strákarnir í Run & Gun hlaðvarpinu tóku saman helstu lykilatriðin í hverri seríu og hverju ætti að fylgjast með. Meðal þess sem vert er að fylgjast með er hvernig lið ætla að stöðva Dominykas Milka í teignum og hvort Veigar Páll Alexandersson reynist svalur á ögurstundu.

Einnig verður fróðlegt að sjá hvort Seth LeDay haldi haus og hvort leikmenn á borð við Þóri Guðmund og ÍR-inga detti í sinn þekkta úrslitakeppnisgír. Einstaklingsvígin verða ekki síðri þar sem baráttan á milli Bulic og Acox, ásamt Toms og Ægis, mun kveikja í parketinu. Sömuleiðis ríkir spenna um það hvort Remy Martin sé klár í slaginn og hvort Jakob Falco nái að skrúfa verulega upp í stigaskorinu sínu.

Hverju skal fylgjast með samkvæmt Run & Gun er hægt að sjá hér fyrir neðan og þá er hægt að hlusta á umræðuna í síðustu upptöku hlaðvarpsins hér.

Fréttir
- Auglýsing -