Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, verðlaunahátíð KKÍ, úrslitakeppni Bónus deildar karla, hverjir eru raunverulegir sigurvegararar tímabilsins og margt fleira.
Þá kafar Aukasendingin einnig ofan í þá aðila innan íslenska körfuboltans sem virðast fá óhóflega mikla gagnrýni miðað við tilefni. Umræðan snérist um það hvort ákveðnir leikmenn, þjálfarar og stofnanir séu orðin „auðveld skotmörk“ fyrir neikvæðni, þrátt fyrir að vera í mörgum tilfellum að vinna sína vinnu af miklum metnaði.
Hérna er Aukasendingin á Spotify
Umræðuna um hverjir fá mesta hitann er að nálgast í síðustu Aukasendingu hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Fimm sem fá óþarflega mikinn hita:
- KKÍ: Stanslaus gagnrýni dynur á sambandinu fyrir nánast ekki neitt.
- Keflavík: Hafa ekki náð þeim árangri sem vænst er í mörg ár karlamegin, en eru samt stöðugt á milli tanna fólks.
- Körfuboltakvöld: Frábær sjónvarpsvara sem áhorfendur elska að hafa sterkar skoðanir á.
- Arnar Guðjóns & Adomas Drungilas (Tindastóll): Arnar gagnrýndur fyrir læti og Adomas fyrir fautaskap, en báðir eru miklir keppnismenn og samkvæmt heimildum ljúfmenni.
- Brynjar Karl (Aþena): Reynir endalaust að fá hita og fólk bítur nánast undantekningalaust á agnið.




