Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Álftnesingar eru sagðir á eftir leikmanni ÍA sem á dögunum var valinn sá besti ungi í Bónus deildinni, Styrmi Jónassyni. Fari svo hann ákveði að yfirgefa ÍA eru Tindastóll og KR einnig talin hafa áhuga.
- Álftnesingar eru einnig sagðir hafa áhuga á öðrum leikmanni ÍA Gojko Zudzum.
- Bragi Guðmundsson leikmaður Ármanns er sagður næsta öruggur um að yfirgefa félagið í sumar. Talið er líklegt að Tindastóll og Stjarnan reyni að fá hann í sínar raðir, en allra líklegast hann haldi í atvinnumennsku á meginland Evrópu.
- Orðið á götunni er að stjörnuleikmaður Keflavíkur Sara Rún Hinriksdóttir yfirgefi félagið mögulega í sumar. Líklegast er talið hún gangi til liðs við Hauka, Njarðvík eða haldi aftur í atvinnumennsku í Evrópu.
- Ekki er talið líklegt að Hjalti Vilhjálmsson haldi áfram með Álftanes á næsta tímabili. Álftnesingar eru sagðir í startholunum að setja sig í samband við arftaka hans. Efstir á lista hjá félaginu eru sagðir Ísak Máni Wíum, Benedikt Guðmundsson og Hörður Unnsteinsson.
- Samkvæmt orðrómi mun Davíð Arnar Ágústsson úr Þór Þorlákshöfn ganga til liðs við Tindastól nú í sumar.
- Þá er sá orðrómur á kreiki að liðsfélagi Davíðs hjá Þór Ísak Purdue muni ganga til liðs við nýliða Hattar í Bónus deildinni.
- Höttur eru einnig sagðir hafa áhuga á Rafail Lanaras úr Þór, en samkvæmt orðrómi eru fleiri félög sem vilja fá hann í sínar raðir fyrir komandi tímabil, nefnd hafa verið ÍR og Ármann.
- Samkvæmt orðinu á götunni mun Daði Steinn Arnarsson taka við Hamri fyrir næsta tímabil.
- Þá er talið líklegt að leikmaður Hamars Björn Ásgeir Ásgeirsson muni yfirgefa liðið. Líklegir áfangastaðir eru taldir Fjölnir, Ármann eða Njarðvík.
- Leikmaður ÍR Hákon Örn Hjálmarsson hefur verið orðaður við brottför frá uppeldisfélagi sínu eftir frábært tímabil í Breiðholtinu. Heyrst hefur af áhuga frá liðum bæði í Eistlandi og Austurríki.
- Ekki er talið líklegt að Óskar Þór Þorsteinsson haldi áfram með lið ÍA á næsta tímabili. Tvenna Péturs Sigurðarsonar og Atla Aðalsteinssyni hefur verið nefnd að komi í stað hans á Skagann.
- Heysrt hefur að Baldur Már þjálfari karlaliðs Fjölnis og Halldór Karl þjálfari kvennaliðs Fjölnis gætu víxlað störfum í sumar.
- Veigar Páll Alexandersson leikmaður Njarðvíkur er sagður vera undir smásjánni hjá nokkrum liðum á Íslandi, s.s. Keflavík, Grindavík og Val. Fari svo hann yfirgefi Njarðvík er hann talinn líklegur til að semja við eitt þeirra eða lið á meginlandi Evrópu.
- Þá hefur Mikael Hrafnsson þjálfari Breiðabliks verið orðaður við þjálfarastöðu hjá Skallagrím í Borgarnesi.
- Sá orðrómur er í gangi að Sigurður Pétursson leikmaður Álftaness, sé með klásúlu í nýgerðum samning sínum um að mega fara til uppeldisfélags síns í Haukum fari svo þeir komist upp í Bónus deildina.
- Tvö lið, Stjarnan og Valur, sem eru á leið inn í úrslitakeppnina eru samkvæmt orðrómi á leið í mikla endurnýjun leikmanna og þjálfarateymis ef illa fer í úrslitakeppninni.
- Bæði KR og Tindastóll eru sögð vilja semja við bakvörð Stjörnunnar Ægi Þór Steinarsson fyrir næstu leiktíð.
- Hávær orðrómur hefur verið þess efnis að Lárus Jónsson muni yfirgefa Þór nú í sumar og að þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar Baldur Þór Ragnarsson mæti aftur heim til þess að taka við uppeldisfélaginu.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




