Úrslitakeppni Bónus deildar kvenna heldur áfram í kvöld með tveimur áhugaverðum viðureignum.
Valur tekur á móti Grindavík kl. 19:00, en aðeins tvö stig skildu liðin að í A-riðli. Klukkan 19:30 mætast KR og Keflavík í Vesturbænum. Keflavík vann B-riðilinn af öryggi og mætir dýrvitlausu KR-liði í áhugaverðu einvígi.




