Sigurður Pétursson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Álftanes. Sigurður, sem gekk í raðir félagsins á síðasta ári, hefur fest sig í sessi sem lykilmaður og er í miklum metum hjá stuðningsmönnum.
Huginn Freyr Þorsteinsson formaður fagnar samningnum og segir Sigurð koma með mikilvægan kraft í liðið fyrir komandi tímabil. Sigurður sjálfur kveðst spenntur fyrir áframhaldandi uppbyggingu á Nesinu og hlakkar til að taka þátt í framhaldinu hjá félaginu.




