HomeÚti í heimiEvrópaAnwil Włocławek færðist nær úrslitakeppninni með sigri í Słupsk

Anwil Włocławek færðist nær úrslitakeppninni með sigri í Słupsk

Elvar Már Friðriksson átti fínan leik fyrir Anwil Włocławek í 68–57 sigri á Energa Czarni Słupsk í dag.

Elvar spilaði mest allra í sínu liði, rúmar 30 mínútur, og skilaði 8 stigum, 4 stoðsendingum og einum stolnum bolta. Þrátt fyrir sigurinn situr Anwil enn í 10. sæti deildarinnar með 12 sigra og 12 töp. Liðið er hins vegar í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni þegar sex umferðir eru eftir.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -