HomeBónus deildinBónus deild karlaÞórir Guðmundur valinn sá besti ,,Gaman að spila fyrir KR"

Þórir Guðmundur valinn sá besti ,,Gaman að spila fyrir KR”

Það kom fáum á óvart í dag þegar Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var útnefndur besti leikmaður Bónus deildar karla. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi öflugi landsliðsmaður hlýtur þessi virtu verðlaun, en hann hefur farið á kostum á tímabilinu.

Verðlaunahafar á lokahófi KKÍ

Þórir hefur verið hjartað í liði KR, sem tryggði sér bikarmeistaratitilinn fyrr á árinu undir hans forystu. Fram undan er svo hápunktur tímabilsins, en KR mætir Stjörnunni í átta liða úrslita einvígi í úrslitakeppninni.

Karfan spjallaði við Þóri rétt eftir að hann tók við verðlaununum eftirsóttu.

Fréttir
- Auglýsing -