Keflavík marði Njarðvík í lokaumferð Bónusdeildar karla 82-86 í spennuslag í IceMar-Höllinni.
Egor Koulechov var stigahæstur hjá Keflvíkingum með 27 stig og 13 fráköst en Milka gerði 23 stig og tók 10 fráköst í liði Njarðvíkinga. Það verða því Valur og Keflavík sem mætast í 8-liða úrslitum og fyrir leik í kvöld var ljóst að Grindavík og Njarðvík mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Remy Martin var ekki að finna í liði Keflavíkur í kvöld og munar um minna.
Karfan spjallaði við Daníel Guðna Guðmundsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í IceMar höllinni.





