Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru Geir Elías og sá raunverulegi Tommi Steindórs. Upptökuna er hægt að á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir sviðið í fyrstu deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst í kvöld.
Meðal þess sem farið er yfir er spá Run & Gun fyrir fyrstu umferð úrslitakeppninnar og ljóst er að þeir búast við spennandi rimmum. Í einvígi Sindra og Snæfells hafa sérfræðingarnir mikla trú á Hornafjarðarliðinu og spá þeim öruggum 3-0 sigri. Það er eina einvígið þar sem spáð er hreinum sóp, sem sýnir mikið traust á styrk Sindra á þessum tímapunkti.
Aðeins meiri mótspyrnu er búist við af hálfu Selfyssinga, en spáin gerir ráð fyrir að Haukar klári þá seríu 3-1. Einvígi Breiðabliks og Skallagríms er talið verða hnífjafnt þar sem Blikar munu hafa betur á endanum, 3-2.
Athygliverðasta spáin snýr hins vegar að viðureign Fjölnis og KV. Þrátt fyrir að Fjölnir sé hærra skrifað lið, spáir Run & Gun því að KV sæki sigur í Grafarvoginn og vinni rimmuna 3-2.





