HomeBónus deildinBónus deild karlaEgor leiddi Keflavík til sigurs í lokaumferðinni

Egor leiddi Keflavík til sigurs í lokaumferðinni

Keflavík marði Njarðvík í lokaumferð Bónusdeildar karla 82-86 í spennuslag í IceMar-Höllinni. Egor Koulechov var stigahæstur hjá Keflvíkingum með 27 stig og 13 fráköst en Milka gerði 23 stig og tók 10 fráköst í liði Njarðvíkinga. Það verða því Valur og Keflavík sem mætast í 8-liða úrslitum og fyrir leik í kvöld var ljóst að Grindavík og Njarðvík mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Remy Martin var ekki að finna í liði Keflavíkur í kvöld og munar um minna.

Reykjanesbæjarglíman er ekki fyrir neina amatör tippara, maður veit aldrei hvað kemur upp úr þessum konfektkassa. Í kvöld voru það Keflvíkingar sem lönduðu fyrsta högginu, komust í 5-21 áður en heimamenn rönkuðu við sér og áttu næstu rispu sem reyndist 43-21 kafli og Njarðvík leiddi því 48-42 í hálfleik.

Milka var beittur í fyrri með 13 stig og 9 fráköst og hjá Keflavík var Mirza með 12 stig og 9 fráköst.

Í þriðja hitnaði aðeins í kolunum, Keflvíkingar áttu þó frumkvæðið og náðu að minnka muninn í 66-64 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Egor að spila vel í þriðja hjá Keflavík og Milka áfram að reynast gestunum erfiður.

Fjórði var hörkuspennandi, á lokasprettinum kom Egor Keflavík í 80-84 með 39 sekúndur eftir af leiknum. Veigar Páll minnkaði svo muninn fyrir Njarðvík í 82-84 með 33 sekúndur eftir. Í næstu sókn Keflavíkur kom þristur með minna en 20 sekúndur eftir af leiknum og gestirnir gerðu vel, náðu sóknarfrákastinu og þar með var björninn unninn. Njarðvík braut og Keflavík setti bæði vítin og lokatölur 82-86.

Njarðvík: Dominykas Milka 23/10 fráköst, Luwane Pipkins 17/6 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 16/8 fráköst, Dwayne Lautier-Ogunleye 12/7 fráköst/7 stoðsendingar, Sven Smajlagic 12/5 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 2, Snjólfur Marel Stefánsson 0, Sigurður Magnússon 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Almar Orri Jónsson 0, Bóas Orri Unnarsson 0, Kristófer Mikael Hearn 0.


Keflavík: Egor Koulechov 27/13 fráköst/6 stoðsendingar, Mirza Bulic 22/13 fráköst, Jaka Brodnik 15, Craig Edward Moller 9/4 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 7/8 stoðsendingar, Ólafur Björn Gunnlaugsson 4, Hilmar Pétursson 2, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Nikola Orelj 0, Jakob Máni Magnússon 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0.

Fréttir
- Auglýsing -