Það var boðið upp á mikla skemmtun og hátt skor í Síkinu á Sauðárkróki þegar Tindastóll tók á móti lánlausu liði Álftaness í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar.
Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir heimamenn sem berjast fyrir hagstæðu sæti í efri hluta deildarinnar á meðan Álftanes mætti til leiks með fimm töp í röð á bakinu og bakið upp við vegg í baráttunni um úrslitakeppni. Eftir miklar sveiflur voru það heimamenn sem reyndust sterkari á lokasprettinum og fögnuðu sigri með 115 stigum gegn 104 stigum gestanna.
Gestirnir af Álftanesi mættu dýrvitlausir til leiks og leiddu nánast allan fyrri hálfleikinn. Með góðri hreyfingu á boltanum og öflugum sóknarleik leiddu þeir með sex stigum eftir fyrsta leikhluta og héldu forystunni allt fram í þriðja leikhluta. Þegar mest lét náði Álftanes tólf stiga forskoti og virtust ætla að selja sig dýrt í baráttunni um áframhaldandi von um sæti í úrslitakeppninni.
Tindastóll sýndi hins vegar úr hverju þeir eru gerðir í síðari hálfleik þar sem þeir hertu vörnina og nýttu sér magnaða hittni fyrir utan þriggja stiga línuna til að snúa taflinu við. Stólarnir skoruðu 30 stig í þriðja leikhluta og fylgdu því eftir með 31 stigi í þeim fjórða en liðið skoraði samtals 18 þriggja stiga körfur í leiknum.
Hjá Tindastóli fór tvíeykið Taiwo Badmus og Dedrick Deon Basile algjörlega á kostum en báðir skiluðu þeir 39 framlagspunktum til síns liðs. Taiwo var stigahæstur með 32 stig og 8 fráköst á meðan Dedrick skoraði 31 stig og tók 9 fráköst auk þess að gefa 6 stoðsendingar. Adomas Drungilas átti einnig mjög góðan leik með 16 stig og mikilvæga nærveru í teignum.

Hjá gestunum var það Justin James sem dró vagninn með 25 stig og 8 stoðsendingar en hann fékk góða hjálp frá David Okeke sem skoraði 23 stig og tók 9 fráköst. Dúi Þór Jónsson stýrði leik Álftaness af öryggi með 21 stig og 9 stoðsendingar en það dugði ekki til gegn sóknarþunga heimamanna. Með þessum sigri tryggir Tindastóll stöðu sína í baráttunni um efri sætin en sjötta tap Álftaness í röð þýðir að draumurinn um úrslitakeppni er nánast úti.





